Upphafsorð

Fjármálasaga heimsins undanfarnar aldir hefur að okkar mati verið ævintýri líkust. Færa má rök fyrir því að erlendis hafi þróun bankastarfsemi, skuldabréfamarkaðar og hlutabréfamarkaðar, byggst á tilraunum og græðgi þröngra sérhagsmunahópa. Þar hafa spilling, svik og prettir komið nokkuð við sögu, svo vægt sé til orða tekið.

Okkur virðist sem íslenska fjármálakerfið byggi að nokkru á erlendri fyrirmynd.

Hér kynnum við 10 athugaverð atriði sem efst urðu á blaði hjá starfshópnum um úrbætur á íslensku fjármálakerfi. Þetta er ekki tæmandi listi en markmiðið er fyrst og fremst að skapa almenna umræðu um fjármálakerfi okkar Íslendinga, sem leiðir vonandi til úrbóta í formi lagasetninga á Alþingi, þar sem þurfa þykir.

Blaðamannafundur – myndband